Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
Kindurnar
Var að lesa í bók um austfirði en þar var villtur Hrúta stofn einhvernstaðar nálægt Vopanfirði. Þetta var í kring um 1870.
Valdimar Samúelsson, mán. 16. nóv. 2009
Dagverðarneskirkja
Sæll ! Ég fékk ábendingu um skrif þín um Dagverðarneskirkju. Það var ekki lengur hægt að gera athugasemd við þá grein, svo ég skrifa hér í staðinn. Ég þakka fyrir áhuga þinn varðandi kirkjuna. Það gleður þig án efa að heyra að nú er unnið að því að meta hvað þarf að gera við kirkjuna og hver kostnaðurinn væri. Í framhaldi verður án efa sótt um styrk í sjóð kirkjunnar og vonandi góð svör að vænta þaðan. Síðasta sumar var gerð legstaðarskrá fyrir garðinn. Í söfnuðinum eru 3 einstaklingar og því er aðeins messað einu sinni á ári og verður árlega guðsþjónustan á sunnudag, 12. ágúst 2007 kl. 14 og eru allir velkomnir. Hafa þær messur verið mjög vel sóttar. Vegna stærðar safnaðarins og sjóðs hans í sama stærðarflokki hefur ekki verið hægt að viðhalda kirkjunni, en það stendur vonandi til bóta. Með kveðju, Óskar Ingi Ingason, sóknarprestur Hjarðarholts- og Hvammsprestakalls. http://kirkjan.is/hjardarholts-oghvammsprestakall
Óskar Ingi Ingason (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 10. ágú. 2007