Á að drepa allt það sem enn tórir ?

Ætlar þessi vinstristjórn að drepa niður allt framtak og sjálfsbjargarviðleitni landsmanna?

Úr frétt MBL:
"Nú hefur þegar átt sér stað veruleg aðlögun hjá heimilum og fyrirtækjum sem sést best á verulegum samdrætti í einkaneyslu, hruni í fjárfestingu einkaaðila, auknum gjaldþrotum fyrirtækja og lækkandi launum á almennum vinnumarkaði. Hið opinbera verður að taka þátt með sama hætti."

Já þeir ætla að taka á þessu með sama hætti, sem sagt setja fleiri fyrirtæki í þrot með skatttöku og hávöxtum.

Taka fyrir alla einkaneyslu almennings með sama hætti, með ofurskatttöku og ofurvöxtum á öll lán.

Ef einhver atvinnurekstur verður enn til á landinu, nái þetta fram að ganga, ja þá verð ég hissa.

Kannski fáum við bara öll vinnu hjá skattmann við að kreista lífið hvert úr öðru.

ÁFRAM ÍSLAND
NEI við ESB  -  NEI við Icesave - NEI við AGS

Styðjum Samtök Fullveldissinna
http://www.fullvalda.is

http://fullvalda.blog.is/blog/fullvalda/


mbl.is Skattastefnu stjórnvalda harðlega mótmælt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Það gengur bara vel hjá Steingrími. Að ári tekur hann upp titilinn: Castro norðursins !

Loftur Altice Þorsteinsson, 1.10.2009 kl. 21:08

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Við viljum auðvitað burt með .þessa vinstri villu strax ekki bíða meira skipsbrot en orðið er,að ári of seint/ Kveðja /Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 1.10.2009 kl. 21:26

3 Smámynd: Elle_

"Kannski fáum við bara öll vinnu hjá skattmann við að kreista lífið hvert úr öðru."

Já, hví ekki, mun verða eina vinnutækifærið.  

Elle_, 1.10.2009 kl. 21:47

4 identicon

Heill og sæll; Ísleifur  -  sem og, þið önnur, hér á síðu !

Það er alveg ljóst; að með núverandi stjórnarfari, mun byggð eyðast, smám saman, hér á landi, nema,...... borgríkið Reykjavík, fengi að tóra um sinn, með styrkja ölmusu ESB, álpuðust Íslendingar þar inn, á annað borð.

Loftur og Halli gamli !

Hygg; að þið skylduð ekki gera ykkur, neinar vonir, um endurkomu Sjálfstæðis- og Framsóknarflokka, að landstjórninni. Þeir eru búnir; að valda nógu miklu tjóni - þó svo; kratar og Kommúnistar drösluðust frá, hið fyrsta, sem fyllsta þörf er á.

Utanþingsstjórn; er eina veika vonin, úr þessu, sýnist mér, gott fólk.

Með beztu kveðjum; sem jafnan, og áður /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 2.10.2009 kl. 01:17

5 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Á þetta vinstra lið að vera til frambúðar.?.... mig hryllir við.

Ég horfði á Steingrím J.  í Kastljósinu í gærkvöldi og setti bara puttana í krossog bað alla heilaga vætti að bjarga Íslensku þjóðinni. Ekki þetta vinstra liðí framlínuna og til að taka ákvarðanir, þjóðstjórn strax áður en þau gera meiri vitleysur á okkar kostnað. 

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 2.10.2009 kl. 07:40

6 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Sóldís enga þjóðstjórn! Málið er að það er verið að ýja að því sem Davíð stakk upp á fyrir ári með Þjóðstjórn. Ég skil ekki alveg tilganginn með því. Væru Sjálfstæðismenn tilbúnir að taka þátt í þjóðstjórn allra flokka þegar að þessi stjórn fellur? Eða er þetta ekki bara blekking og þeim langar í stjórn með Framsókn?

Hinsvegar  eftir það sem á hefur gengið finnst mér að næst ætti að leggja valkosti fyrir þjóðina:

Utanþingsstjórn,

á móti

Þjóðsstjórn

Mér finnst það sjálfsagt eftir það sem á undan er gengið í þjóðfélaginu!

Hinsvegar yrði Utanþingsstjórn að vera tilbúin að berjast fyrir almenning og þá með einhver raunveruleg atriði um þjóðfélagslegar úrbætur!

Guðni Karl Harðarson, 2.10.2009 kl. 14:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband