Er þetta ekki augljóst?

Er það ekki augljóst að þar sem Bretar og Hollendingar hafa hafnað einum lið fyrirvaranna um ríkisábyrgð vegna Icesave samningsins þá er þessum fyrirvörum hafnað í heild og að semja ber á ný um Icesave skuldbindingar þjóðarinnar.

Ríkisstjórnin hefur ekkert leyfi til að breyta ákvörðunum Alþingis án þess að málið í heild verði tekið til umfjöllunar á þingi. Alþingi ber augljóslega að krefjast þess að Icesave samningur Svavars Gestssonar og félaga verði ógiltur og samið verði upp á nýtt ella fari málið fyrir dómstóla sem skeri úr um ábyrgð þjóðarinnar á gerðum þeirra óráðsíumanna sem hér réðu ríkjum þegar 'Hrunið' varð.

Sjá líka blogg Gests Guðjónssonar um "Furðulega vanþekking forsætis- og fjármálaráðherra á stjórnskipun landsins".

ÁFRAM ÍSLAND
NEI við ESB  -  NEI við Icesave

Styðjum Samtök Fullveldissinna
http://www.fullvalda.is

http://fullvalda.blog.is/blog/fullvalda/


mbl.is Icesave rætt í þingnefndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Algjörlega á sama máli.  Mér finnst þetta jafn augljóst og 2+2=4 en Heilög Jóhanna og Steingrímur Joð eru greinilega ekki jafn vel gefin og við.

Jóhann Elíasson, 18.9.2009 kl. 12:59

2 Smámynd: Elle_

Sæll Ísleifur.  Eins ljóst og jörðin er hnöttótt.  Og skringilegt að fólk skuli halda að ryk geti villt um fyrr okkur lýðnum.   ICE-SLAVE í Jöhönnu stíl verður ekkert að lögum nema Alþingi kjósi það, hvað sem einveldisflokkurinn nú heldur.  Fara þau ekki að skilja að fólk er ekki fífl?

Elle_, 19.9.2009 kl. 21:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband