Hvað er svo merkilegt við að ræna elliheimili?

"Rændu elliheimili" stórfrétt á MBL í dag.

Er ríkisstjórnin ekki einmitt að ræna alla aldraða, öryrkja og minni máttar í þjóðfélaginu þessa dagana með lækkun frítekjumarka, minni og lélegri þjónustu, lokun spítaladeilda og stórminnkaðri þjónustu við þá sem myndu eflast við tímabundna dvöl á Grensásdeild LHS.

Þeir segja kannski "Við myrðum þó engan" sér til afsökunar.

En hvað margir í þessum hópum verða ósjálfbjarga og deyja jafnvel drottni sínum af þeirra völdum?

"Við verðum að hafa þetta svona til að geta greitt Icesave og aðgöngumiðann að ESB að við ekki tölum um til að fá lánin frá AGS og Norðmönnum" er viðkvæðið.

Nú hafa Sjálfstæðisflokkurinn og Borgarahreyfingin ákveðið að gerast meðsek í glæpnum til að firra sig frekara þrefi í Fjárlaganefnd og komast í sumarfrí (auðvitað á fullum launum).

Hvers slags sýndarlýðræði er þetta eiginlega sem við búum við? Þetta minnir óþægilega á 'Animal Farm' eftir George Orwell þar sem allir eiga að vera jafnir en sumir eru samt 'jafnari' en aðrir.

ÁFRAM ÍSLAND
NEI við ESB  -  NEI við Icesave

Styðjum Samtök Fullveldissinna
http://www.fullvalda.is

http://fullvalda.blog.is/blog/fullvalda/


mbl.is Rændu elliheimili og myrtu starfsmann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Á sama tíma er Landsbankinn að afskrifa hátt í 50 milljarða króna skuldir Magnúsar Kristinssonar. Hvað er það eiginlega?

Guðmundur Ásgeirsson, 18.8.2009 kl. 10:12

2 Smámynd: Ísleifur Gíslason

Já Guðmundur, skrítið er þetta og ekki hefur mér verið boðið að afskrifa neinar skuldir.

Lengi getur vont versnað,  enn er boðaður niðuskurður á velferðarkerfi okkar til þess að þjónusta AGS, ESB og Icesave.

"Hrikalegur niðurskurður framundan - Ríkisstofnanir búa sig undir miklar uppsagnir"

ÁFRAM ÍSLAND
NEI við ESB  -  NEI við Icesave

Styðjum Samtök Fullveldissinna
http://www.fullvalda.is

http://fullvalda.blog.is/blog/fullvalda/

Ísleifur Gíslason, 18.8.2009 kl. 12:04

3 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Hrikalegt lid vid stjorn....nidur med -essa vinstri stjorn.  eg er -er sammäla.  

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 19.8.2009 kl. 07:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband