Færsluflokkur: Heilbrigðismál

Ekki þjóðhagslega hagkvæmt!

Ekki þjóðhagslega hagkvæmt!

Þegar ég var fimmtugur fór ég á heilsugæsluna og bað um að fá almennilega allsherjar skoðun á líkamsástandi mínu en heilsugæslulæknirinn sagði mér að það væri ekki hægt, engin læknir eða stofnun tæki slíkt að sér.
Á meðan læknirinn mældi hjá mér blóðþrýstinginn spurði ég hvers vegna ekki væri framkvæmdar svona skoðanir hér á landi og svarið sem ég fékk var að það væri ekki ‚þjóðhagslega hagkvæmt‘ ég sagði að mér þætti þetta undarlegt þar sem ég ætti venslafólk í BNA sem væri boðað samkvæmt fyrirmælum tryggingasala í svona skoðanir á ákveðnum fresti sem miðaðist við aldur þeirra.
Upp úr þessar uppákomu pantaði ég tíma í ristilspeglun hjá merkum meltingarfræðingi og hef farið í slíka skoðum nokkrum sinnum þar sem einhverjir meinlausir separ voru fjarlægðir til þess að koma í veg fyrir að þeir yllu meinsemdum seinna meir.
Nú um daginn var haft samband við mig og mér boðið að koma í speglun og þáði ég það en í þetta sinn fannst mér eins og skoðunin væri hálf flaustursleg enda ekki skoðaður allur ristillin eins og ég hafði vanist.
Eftir skoðunina og dálitla bið á biðstofu kallaði læknirinn mig í viðtal og sagði mér að allt virtist vera í góðu lagi hjá mér.
Svo kom rúsínan í pylsuendanum: „þú ert orðin 68 ára er það ekki“ játti ég því. „Einmitt það, við munum þá ekki trufla þig aftur“ sagði læknirinn.
Já það er greinilega ekki þjóðhagslega hagkvæmt að eyða peningum og tíma í að fylgjast með líkama afdankaðra gamalmenna.
Ég verð þó að bæta því hér við að fyrir skömmu þurfti að fjarlægja hjá mér skjaldkirtilinn vegna krabbameins og krabbameinslæknirinn sem hefur haft mig til meðferðar virðist ekki hafa slegið slöku við að fylgjast með því að aðgerðin hafi heppnast og að lyfin sem eiga að taka við af skjaldkirtlinum sú að virka rétt.

Ég hef nú samt þann illa grun að það sé ekki ‚þjóðhagslega hagkvæmt‘ að eyða og miklu púðri í að púkka upp á fólk sem dottið er út af vinnumarkaði fyrir einhverjar sakir eins og aldurs.


Elur lyfjamafían lækna upp til að selja sína vöru?

Hvers vegna að kaupa beinþynningalyf  sem geta verið hættuleg og í besta falli gagnslaus?

Talað er um að nota meira af lyfinu Alendrónsýra vegna þess að það er svo mikið notað á Norðurlöndunum. Hvað er í gangi hér? Á að gefa sjúklingum hættuleg lyf til að spara peninga fyrir ríkissjóð bara af því að Danir gera það?

“Alendronat Ranbaxy töflur 70 mg. Virka efnið er alendrónsýra. Alendrónsýra er notuð til að meðhöndla beinþynningu hjá konum eftir tíðahvörf. ...”
www.lyfjastofnun.is

Hér er lýsing á virkni lyfsins:
Biphosphonate drugs, like Fosamax, Actonel and Bonivawork by killing off osteoclastswhich are supposed to resorb old, infirm bone. So when you take these medications, your bones may stay denser, but they will be composed of a higher amount of old, poor quality bone cells.The bone structure is made up of both of collagen and calcium, which means they will be more brittle and weak. You must have balanced bone resorption and creation. These drugs create an unbalanced environment which can't create strong healthy bones.
In fact, one of those drugs has been shown to increase rates of bladder cancer in the people who use it. There are also other prescription drugs that block the absorption of calcium into bones. Prednisone does this. It is commonly used to treat autoimmune, asthma, and inflammatory diseases.

Research any drug your doctor recommends online first to read about what its side effects are.
(Leitaðu upplýsinga um þau meðul sem læknirinn mælir með til að komast að hverjar hliðarverkanirnar eru.)”
http://www.health-reports.com/Osteoporosis.html

Væri læknum ekki nær að nota aðferðir sem eru náttúrulegri, heilnæmari og ódýrari.

Ég ráðlegg fólki að lesa upplýsingarnar sem má finn á vefsíðu Health Reports (http://www.health-reports.com/Osteoporosis.html)  áður en farið er að éta einhver lyf sem lyfjamafían segir lækninum að gefa.

Alendronate – Alendrónsýra
Generic Name: Alendronate 40 mg Tablets (a-LEN-droe-nate)
Brand Name: Fosamax
_____________________________________________________________________________________________
ÁFRAM ÍSLAND
NEI við ESB  -  NEI við Icesave
Styðjum Samtök Fullveldissinna
http://www.fullvalda.is
http://fullvalda.blog.is/blog/fullvalda/
 
mbl.is Hægt að lækka lyfjakostnað um 100 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband