Færsluflokkur: Umhverfismál

Heitir þetta ekki mannvonska og níðingsháttur?

Dýralæknir heimtar að við útrýmum villtum fjárstofni af mannúðarástæðum, rekum skepnurnar fyrir björg ef ekki er hægt að drepa þær með öðru móti. Sér er nú hver mannúðin eða hvað?
Eigum við þá ekki að útrýma hreindýrastofninum líka enda kemur fyrir að stöku dýr horfellur eða slasar sig úti í náttúrunni.
Þessi villti fjárstofn á Tálkna gæti orðið vísir að veiðistofni sem hægt væri að selja í leyfi til veiða, enda hefur það oft heyrst af máli erlendra veiðimanna sem hingað hafa komið að þeir væru tilbúnir að borga háar summur fyrir að fá að veiða hér vel hyrndan hrút.
ÁFRAM ÍSLAND
NEI við ESB  -  NEI við Icesave - NEI við AGS
Styðjum Samtök Fullveldissinna
http://www.fullvalda.is

mbl.is Nítján kindur heimtar af Tálkna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trjárækt í landi Reykjavíkur

Nú er ég búinn að stinga niður 40 skógarplöntum við Höfðabakka, líklega hafa einhverjir litið undrandi á kallinn vera að skakklappast þarna við veginn.

Nú er bara að vona að Alvaldur leyfi þessu að lifa en það verður varla að fullu ljóst fyrr en næsta vor.

Já, nú er bara að bíða og vona það besta Joyful


Enn um Bryggjuhverfið og sóðana

Í dag keypti ég bakka af stafafuru til að setja niður við Höfðabakka. Það mun vonandi smám saman hjálpa til við að fanga svifryk og minnka umferðarnið.

Ég er orðinn stein hissa á sinnuleysi borgaryfirvalda gagnvart hverfinu mínu. Uppivaðandi sóðaskapur hjá fyrirtækjum á höfðanum ofan við hverfið þar sem framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar og Vaka eru mestu sóðarnir, draslið fýkur frá framkvæmdasviði þegar vind hreyfir að einhverju ráði og þeir hjá Vöku hafa einhver tíma hent ónýtum vélapörtum yfir forljóta girðinguna þar sem draslið virðis eiga að liggja til eilífðarnóns.

Björgun er enn fyrir vestan hverfið með sína drullumengun og hávaða. Í fyrra byrjaði Björgun á að ýta upp hárri mön sem á hugsanlega að bjarga einhverju fyrir hverfið ef þeir sjá þá einhvern tíma sóma sinn í að klára fyrirbærið og rækta þar upp gras og trjágróður. Þangað til hún er kláruð er mön þessi bara enn eitt augnasárið sem feykir sandi og drullu yfir hverfið.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband