Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál

Evrópa og AGS munu koma Íslandi á vonarvöl !

Það er engin spurning að ef ESB með hjálp AGS og ríkisstjórnar Jóku klóku og skalla-Grímsa hefur sitt í gegn mun þjóðin verða gjaldþrota og börnin okkar, þau sem ekki eru fær um að flýja land hið snarasta, munu verða í skuldafangelsi á útkjálka Evrópusambandsins.

Svona í framhjáhlaupi læt ég fylgja í viðhengi leynigögnin sem urðu til þess að sett var lögbann á RÚV fyrir að fjalla um þau. Ég er viss um að til eru menn sem hafa betri þekkingu en ég á svona fjármálum hafa gagn af að skoða þessi gögn sem ég halaði niður af Netinu


mbl.is Ísland – það sem læra má af efnahagshruninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Þjóðníðingar vinna fyrstu orrustu stríðsins um ESB-aðild

Þjóðníðingar fimm flokka á alþingi ákváðu í dag að eyða miljörðum í aðildarumsókn að ESB!

Þeim milljörðum hefði verið betur varið í aðstoð við heimilin og fyrirtækin í landinu því að við sem höfum fullveldi þjóðarinnar að leiðarljósi vinnum þetta stríð.

Það er engum blöðum um það að fletta að Rómarsáttmálinn gefur engin grið eða undanþágur við stefnu sína og reglugerðir.

Þegar að þjóðaratkvæðagreiðslu kemur munu allir þjóðhollir íslendingar segja nei við ESB enda ekki eftir neinu að sækjast öðru en að verða fátækur útnárahreppur sambandsins án neinnar stjórnar á sínum málum.

Geymið nöfn þjóðníðinganna á vísum stað og strikið þau út í næstu kosningum ásamt þeim tveim sem ekki gátu staðið við sannfæringu sína frammi fyrir þjóðinni og sátu hjá.

NEI við ESB - NEI við Icesave. ÁFRAM ÍSLAND


mbl.is Samþykkt að senda inn umsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingum virðist vera sama hvernig þeim er nauðgað í ánauð til Brüssel.

Var á mótmælavaktinni á Austurvelli með lúðurinn minn, í alltof fámennum hóp, frá rúmlega eitt til sjö í kvöld. Íslendingum virðist vera sama hvernig þeim er nauðgað í ánauð til Brüssel.


Hvernig væri að þjóðin reyndi að vakna af sínum dásvefni og léti í sér heyra.

NB. það fara engin mótmæli í gang ef allir bíða bara og gá hvort eitthvað fari í gang Angry

Nei við ESB - Nei við Icesave. Áfran Ísland !!!


Allir á Austurvöll í dag!

Í dag stendur til að greidd verði atkvæði um landráðatillögu ríkisstjórnarinnar varðandi ESB aðildarumsókn.

Þeir sem halda að hér sé bara verið að kíkja í pakkann eru haldnir hættulegum misskilningi því að hægt er að sjá 95% af skilyrðum og lagabálkum ESB með því að lesa þær upplýsingar sem birtar eru á vefsíðum ESB EKKI HALDA AÐ OKKUR STANDI NEITT ANNAÐ TIL BOÐA.

Tillaga ríkistjórnarinnar gengur ekki út á að kíkja í einhvern pakka heldur gengur hún út á að framselja fullveldi þjóðarinnar til skrifræðisins í Brüssel.

ALLIR SEM GETA EIGA NÚ AÐ MÆTA Á AUSTURVELLI OG MÓTMÆLA MEÐ HRÓPUM OG BUMBUSLÆTTI !!!


Alþingi segi NEI !

Ég skora á alla alþingismenn, hvar í flokki sem þeir standa að segja nei við ‚Tillögu til þingsályktunar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu‘

Ég er ekki viss um að menn geri sér fyllilega grein fyrir því hvað er í húfi fyrir þjóðina ef við verðum neydd inn í ESB.
Hvað er í húfi?
·         Umráðin yfir fiskveiðiheimildum í lögsögu Íslands.
·         Rekstur sjálfbærs landbúnaðar á Íslandi.
·         Umráðin yfir orkuauðlindum Íslands í landi og á sjó.
·         Ég tel síðast en ekki síst FULLVELDI þjóðarinnar og er þó margt ótalið.

Af þessum atriðum hefur minnst verið talað um orkuna.
Verið getur að það sé einmitt orkan okkar sem ESB girnist mest. Gefum að nú finnist olía á Drekasvæðinu, ætli vopnfirðingar yrðu ánægðir með að olían væri flutt beint til Amsterdam án viðkomu hér á landi, samkvæmt skipunum frá Brüssel?
Ætli þeir sem þó hafa atvinnu af orkufrekum iðnaði yrðu hrifnir af því að ESB legði sæstreng til landsins svo þeir gætu mjólkað til sín rafmagnið og sett þennan iðnað og þjóðina í orkusvelti vegna síaukinnar orkunotkunar meginlandsins?
Þetta eru raunverulegar hættur sem engum skildi gleymast.

Samtök Fullveldissinna munu ekki samþykkja að sótt verði um aðild að ESB.

Hér er þetta vonda plagg sem aldrei hefði átt að sjá dagsins ljós og engir munu samþykkja utan þeir sem ættu að teljast útlægir landráðamenn: (Ég lita það brúnt af því það er skítalykt af því)

þingskjal 38 (38. mál)Tillaga til þingsályktunar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu.  (Lögð fyrir Alþingi á 137. löggjafarþingi 2009.)Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að leggja inn umsókn um aðild að Evrópusambandinu og að loknum viðræðum við sambandið verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning.Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.Tillaga um aðildarumsókn að Evrópusambandinu er lögð fram til þess að íslenska þjóðin fái tækifæri til að hafna eða samþykkja samning um aðild að sambandinu þegar hann liggur fyrir.Umsókn að ESB jafngildir þannig ekki aðild enda er það íslensku þjóðarinnar að komast að endanlegri niðurstöðu hvað hana varðar. Jafnframt verði lagt fram frumvarp til laga um þjóðaratkvæðagreiðslur um mikilvæg mál sem ríkisstjórn eða Alþingi ákveða að leggja fyrir þjóðina.Víðtækt samráð verður haft við hagsmunaaðila um samningsmarkmið fyrir viðræðurnar á ýmsum sviðum, svo sem sjávarútvegs-, landbúnaðar- og byggðamála, á sviði almannaþjónustu, umhverfis- og jafnréttismála og gjaldmiðilsmála, og leitast við að ná sem breiðastri samstöðu um umræðugrundvöll viðræðnanna. Skoðað verður hvort unnt sé að ná fram samstarfi í gjaldmiðilsmálum samhliða viðræðum um hugsanlega aðild til að styðja við gengi krónunnar. Áhersla er lögð á opið og gagnsætt ferli og reglubundna upplýsingagjöf til almennings og hagsmunaaðila.Fagleg viðræðunefnd við ESB verður skipuð af ríkisstjórn Íslands. Henni til fulltingis verður breiður samráðshópur fulltrúa hagsmunaaðila sem nefndin leitar ráðgjafar hjá, og upplýsir jafnóðum um framvindu viðræðna. Ísland sem Evrópuþjóð vill leggja sitt af mörkum við uppbyggingu lýðræðislegrar Evrópu sem grundvallast á félagslegu réttlæti, jafnrétti og virðingu fyrir manngildi og umhverfi. Hlutverk Evrópu er að vera hornsteinn mannréttinda í heiminum og ýta undir stöðugleika, sjálfbæra þróun, réttlæti og velmegun um allan heim.Málsaðilar áskilja sér rétt til að mæla með eða leggjast gegn samningnum þegar hann liggur fyrir enda eru settir margvíslegir fyrirvarar við hugsanlegan stuðning við málið.Meðal grundvallarhagsmuna Íslands eru:

  • Að tryggja forræði þjóðarinnar yfir vatns- og orkuauðlindum og ráðstöfun þeirra.
  • Að tryggja forræði þjóðarinnar yfir fiskveiðiauðlindinni, sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar og hlutdeild í deilistofnum og eins víðtækt forsvar í hagsmunagæslu í sjávarútvegi í alþjóðasamningum og hægt er.
  • Að tryggja öflugan íslenskan landbúnað á grundvelli fæðuöryggis og matvælaöryggis.
  • Að tryggja lýðræðislegan rétt til að stýra almannaþjónustu á félagslegum forsendum.
  • Að standa vörð um réttindi launafólks og vinnurétt.
  • Að ná fram hagstæðu og vaxtarhvetjandi samkeppnis- og starfsumhverfi fyrir atvinnulíf á Íslandi um leið og sérstöðu vegna sérstakra aðstæðna er gætt.
Stefnt er að því að Alþingi setji á fót sérstaka Evrópunefnd Alþingis með fulltrúum allra stjórnmálaflokka er fari með samskipti við viðræðunefnd vegna ESB."

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband